Algengar spurningar
Ef þig vantar frekari upplýsingar sendu okkur þá línu á info@jokulsarlon.is
Hafa samband
Hvenær er Jökulsárlón opið?
Kaffihúsið við lónið er opið allt árið nema 24.–26. desember og 31. desember–2. janúar. Bátsferðir eru yfirleitt í boði frá byrjun maí fram í október, eftir veðri og aðstæðum. Undanfarin ár hafa ferðir verið í boði frá 1. maí til 15. nóvember. Hafðu samband í síma +354 478 2222 til að fá upplýsingar um framboð.
Hversu margar bátsferðir eru í boði á dag?
Á háannatíma í júní, júlí og ágúst eru ferðir í boði að minnsta kosti á hálftíma fresti.
Síðasta ferð dagsins fer yfirleitt um kl. 18:00.
Hversu langan tíma tekur bátsferð?
Hjólabátaferð (amphibian) tekur um 30–40 mínútur. Zodiac-ferð tekur um 1 klukkustund og 15 mínútur. Innritun þarf að fara fram 20 mínútum fyrir brottför í hjólabátnum og 30 mínútum fyrir Zodiac-ferðina.
og 30 mínútum fyrir Zodiac-ferð.
Þarf að bóka fyrirfram?
Við mælum með að bóka fyrirfram á netinu. Fyrir hópa með 12 manns eða fleiri er best að bóka með tölvupósti á booking@jokulsarlon.is.
Hvar er Jökulsárlón?
Jökulsárlón er við þjóðveg 1 á Suðausturlandi og auðvelt að finna.
Mega börn fara í bátsferðir?
Já. Í hjólabátum eru björgunarvesti fyrir alla aldurshópa. Börn þurfa að vera að minnsta kosti 130 cm á hæð til að fara í Zodiac-ferð.
Er kalt við lónið?
Já, jafnvel á sumrin. Mælt er með hlýjum fatnaði í lögum, húfu og vettlingum. Í Zodiac bátum er gott að vera í vatnsheldum fatnaði.
Er hættulegt að sigla á lóninu?
Nei. Skipstjórar hafa mikla reynslu og þekkingu á lóninu. Öryggi farþega er ávallt í fyrirrúmi.
Má koma með eigin bát eða kajak?
Það er ekki mælt með því þar sem ísjakar geta brotnað og oltið fyrirvaralaust. Siglingar eru á eigin ábyrgð.
Hvað gerist í bátsferðinni?
Leiðsögumaður segir frá jöklinum, lóninu, dýralífi og sögu svæðisins. Gestir fá tækifæri til að sjá ísjaka í návígi og njóta stórbrotins útsýnis.
Má tjalda við lónið?
Nei. Það er ekki leyft að tjalda við lónið. Tjaldsvæði næst lóninu er í Skaftafelli.
Hverjir eru afbókunarskilmálarnir?
Einstaklingar geta fengið endurgreitt að fullu ef þeir afbóka með 24 klukkustunda fyrirvara eða meira fyrir ferðina, en frá 23 klst til 2 klst fyrirvara færðu 50% endurgreiðslu.
Hversu langt er í Demantaströndina?
Demantaströndin ( Fellsfjara) er í um 500 metra fjarlægð frá lóninu. Auðvelt er að komast að austurhluta strandarinnar með því að ganga eftir stíg sem liggur undir brúna. Til að komast í Vestari Fellsfjöru þarf að nota afleggjara af þjóðveginum vestan við brúnn.
Eru salerni og önnur þjónusta á svæðinu?
Já. Þar eru salerni, kaffihús, bílastæði og önnur þjónusta fyrir gesti.
Er aðgengi fyrir hreyfihamlaða?
Já. Útsýnispallar, stígar, kaffihús og hjólabátaferðir eru almennt aðgengileg fyrir hreifihamlaða.
Má fljúga dróna?
Drónar eru aðeins leyfðir með sérstöku leyfi frá Vatnajökulsþjóðgarði.
Hvað ef ferð fellur niður vegna veðurs?
Ef ferð er aflýst vegna veðurs er boðið upp á endurbókun eða fulla endurgreiðslu.
Má sjá seli?
Já. Selir sjást oft á lóninu, ýmist á ísjökum eða á sundi. Einnig má sjá fjölbreytt fuglalíf.
Hvað er í boði á kaffihúsinu?
Kaffihúsið býður upp á ferskar samlokur útbúnar á staðnum, humarsúpu, kökur, heita og kalda drykki auk minjagripa.
.
.Þarf að greiða fyrir bílastæði?
Já. Bílastæðagjald er innheimt í gegnum Parka-kerfið samkvæmt gjaldskrá Vatnajökulsþjóðgarðs.
Er alltaf jafn mikill ís á lóninu?
Nei. Magn íss breytist stöðugt eftir árstíma, veðri, sjávarföllum og virkni Breiðamerkurjökuls.