Um Lónið

Yfir 35 ára reynsla

Jökulsárlón er staðsett við þjóðveg 1, um 370 km austur af Reykjavík, og er eitt merkilegasta náttúruundur Íslands. Lónið myndaðist vegna hopunar Breiðamerkurjökuls, sem er skriðjökull úr Vatnajökli, lónið heldur áfram að stækka eftir því sem ísjakar brotna frá jöklinum og reka út í átt að Atlantshafinu.

Jökulsárlón tengist sjónum og gætir áhrifa sjávarfalla í lóninu sem skapa síbreytilegt landslag fljótandi íss. Með allt að 284 metra dýpi er Jökulsárlón dýpsta stöðuvatn Íslands.

Í meira en 35 ár höfum við deilt þessari einstöku náttúruperlu með gestum alls staðar að úr heiminum og boðið upp á ógleymanlegar bátsferðir meðal aldagamalla ísjaka, stórbrotins jöklaútsýnis og tækifæra til að sjá seli í sínu náttúrulega umhverfi.

Bátsferðir

Upplifðu Jökulsárlón í einum af hjólabátunum okkar þar sem siglt er meðal stórbrotinna ísjaka í þekktasta jökullóni Íslands. Fyrir þá sem vilja komast nær jöklinum þá fara Zodiac-ferðirnar okkar, yfir stærra svæði í lóninu, sigla á milli ísjakana og þegar aðstæður leyfa, er farið eins nálægt Breiðamerkurjökul og er öruggt.

Þegar þú siglir út á lónið, fylgstu með hvort þú sjáir ekki seli sem hvíla sig á ísnum, og njóttu stórbrotins útsýnis sem á hvergi sinn jafnoka.

Leiðsögumenn okkar hafa áratuga reynslu af því að bjóða upp á ferðir á Jökulsárlóni og deila heillandi innsýn í síbreytilegt landslag lónsins, dýralíf og jöklasögu, sem gerir hverja ferð einstaka.

This site is registered on wpml.org as a development site. Switch to a production site key to remove this banner.