Skilmálar
Veðurskilyrði
Bátsferðir eru háðar veðri og frosti og það geta orðið tafir eða ferðum aflýst. Ef ferð er aflýst vegna veðurs eða frosts á lóninni færðu fulla endurgreiðslu.
Hvenær er ferðin mín?
Ef þú bókar ferð á netinu færðu sendan miða í tölvupósti sem þú verður að hafa meðferðis. Það er ekki hægt að bóka ferð með hjólabát á ákveðnum brottfarartíma á netinu, þegar þú kemur að Jökulsárlóni verður þú að skrá þig inn í miðasölunni og skipta miðanum fyrir farmiða með ákveðnum brottfarartíma.
Hvenær er síðasta hjólabátaferð dagsins?
Síðasta hjólabáaferð dagsins leggur venjulega af stað um klukkustund fyrir lokun. Til að fá farmiða fyrir síðastu ferðina verður þú að skrá þig inn í miðasöluna að minnsta kosti 30 mínútum fyrir síðustu brottför.
Ég vil breyta dagsetningu á ferðinni minni?
Það er ekkert mál að breyta komudegi og það kostar ekkert aukalega. Þú getur gert það með því að senda okkur tölvupóst. (info@jokulsarlon.is).
Hvað gerist ef ég mæti ekki?
- Ef afbókað er 24 klukkustundum eða meira fyrir ferðina: Þá færð þú færð 100% endurgreiðslu.
- Frá 23 klst til 1 klst fyrir ferðina: Þú færð 50% endurgreiðslu.
Þú getur afbókað ferðina með því að senda okkur tölvupóst á info@jokulsarlon.is eða hringja í okkur í síma +354 478 2222.
Hvað með öryggismál?
Við útvegum björgunarvesti sem allir farþegar verða að vera í um borð í bátnum. Farþegar á Zodiac bátnum verða einnig að vera í flotbúningi. Allir farþegar verða að fylgja öryggisreglum og fyrirmælum sem leiðsögumenn okkar gefa út á meðan á ferðinni stendur.
Skert hreyfigeta?
Ef þú ert með hreyfihömlun- eða heilsufarslegt vandamál, vinsamlegast láttu okkur vita og við munum aðstoða þig eins vel og við getum. Það er mögulegt að fá hjólastól í hjólabátnum.